Tuesday, July 11, 2006

HM hvað?

Jæja HM búið og raunveruleikinn tekinn við. Mikið rosalega var þetta góður úrslitaleikur. Drama drama drama. Og ekki bætti úr skák að Zidane klúðraði að telja upp í tíu áður en hann skallaði Materazzi og allt varð vitlaust. En allt getur gerst í hita leiksins, og hann gerist ekki heitari en þetta held ég. Allavega þá var mér alveg sama hver myndi vinna HM í úrslitaleiknum, mér fannst bæði lið spila vel og eiga bæði skilið sigur. Og mín skoðun á vítinu er að þetta var víti. Það sést greinilega að hann kemur við hægri löppina á honum og svo fer sú löpp í aftari kálfan og fellir sjálfan sig svona eiginlega. En snerting er snerting og á svona harða þá þarf ekki mikla snertingu. Endlaust hægt að deila um þetta.
Annars þá er maður ekki búinn að vera gera mikið annað hérna heima nema læra, vinna og spila skvass. Sem er ágætt líf. En í lokin þá getið þið leikið ykkur á að vera Zidane í nokkrar sekúndur:

http://www.chilloutzone.de/files/06071004.html

Friday, June 16, 2006

Ísland - Svíþjóð

Jæja Ísland -Svíþjóð í handbolta sýnt á morgun og maður er að gera sig til í slaginn. Leitt að maður missir af Ítalía - USA, en það verður að hafa það. Ítalía rústar þessu hvort sem er. Djöfull er ég ánægður með Hollendingana, þeir eiga eftir að taka þetta núna. Ég verð samt alveg fullviss um að þeir taki þetta ef þeir geta spilað eitthvað að viti á móti Argentínu. Þeir eru bara að spila alltof vel argentínumennirnir núna, ég meina 6-0 á móti Serbíu, bara rugl.
Og svo að lokum þá verðum við að senda Svíana heim í góða veðrið sitt(helvítis djöfull) með skottið á milli lappana, ég trúi ekki að við getum tapað með 5 stiga mun. En maður hefur séð annað eins, gaddamit.

Kv. Helmut.

Thursday, June 08, 2006

Sól og blíða en ég ekki þar

Ég hefði ekkert á móti því að vera í Skövde þessa vikuna....

http://www.aftonbladet.se/vader/js/index.html?keyId=225

Tuesday, May 30, 2006

Mega æfingar í gangi...

Fyrst síðasti póstur virkaði þá tek ég sénsinn á að þetta fari inn. Ég held að hinn pósturinn sé bara of langur eða eitthvað svoleiðis rugl. Allvega maður er kominn í svaka skvassæfingarprógram með Robba Swartnegger. Þetta er 4 sinnum í viku og vonandi kemst maður í landsliðið ef maður nær einhverntíman bjórbumbunni af sér. Þetta er samt hörku prógram. Allir í betra formi en ég þannig ég er alltaf síðastur í öllu, svaka gaman. Mega gott að vera kominn í skvassið aftur, fattaði ekki hvað ég saknaði þess mikið. Svo er maður bara búinn að vera sækja um starf hjá Actavís. Er búinn að biðja kennarana mína í Skövde að gefa mér meðmæli, vonandi verða þau góð. Svo fór ég út í læk hérna í grafarvogi með Herði bróður mínum og krökkunum hans. Þrátt fyrir lætin í krökkunum þá fengum við 4 fiska! Strærsti fiskurinn alveg 2 punda! Alveg ótrúlegt, það er enginn að veiða þarna lengur. PSP og xbox búið að taka við hjá krökkum í dag :). Sem ég skil alveg, ef PSP hefði verið til þegar ég var ungur þá myndi ég ekki vita hvað veiða væri.

Þar til næst, verðiði kát!

Helmut...

EItthvað að..

Það er víst eitthvað að blogginu, virkar ekki hérna í þessari tengingu sem er hérna heima. Missir alltaf contactið við blogger.com. Binna getur bloggað en það kemur alltaf villa hjá mér. Þannig verð að fresta þessu eitthvað...

Vonandi sést þetta...

Monday, May 29, 2006

binna

hér er binna að blogga á villa heimur...... athuga hvort þetta virki bla bla bla

Jello

Virkar þetta?

Saturday, May 27, 2006

RUGL!

Afhverju virkar þetta blogg núna en ekki áðan!!

blabla

blabla

Sunday, May 21, 2006

Testing 1 2 3

Jello